7. Starfsemi skjaldkirtils og frítt joð í JKM
Skjaldkirtilsstarfsemi og frítt joð í joðskuggaefni:
Magn af fríu joði við skuggaefnisgjöf:
- Efri mörk frís joðs (I−) i skuggaefni hefur verið sett við c:a 0,01 % af heildarjoðmagninu (bundið joð) í skuggaefninu.
- Mælingar á ýmsum skuggaefnum hafa þó leitt í ljós að raunverulega er magn frís joðs á bilinu 0,001 - 0,005 % af heildarmagni bundins joðs.
- Einnig hefur sýnt sig að það getur losnað frítt joð í likamanum, og getur það leitt til frís joðs hjá sjúklingi sem er 0,15% af bundnu joði í skuggaefninu.
- Tölvusneiðmyndarannsókn þar sem gefin eru 40g af joði getur þannig gefið 400 - 60.000 µg af fríu joði. Sá skammtur getur þannig orðið verulega mikið hærri en þau 150 µg/daglega sem WHO mælir með.
Áhrif frís joðs í líkama:
- Frítt joð getur orsakað klíníska/subklíníska hyperthyrosu (ofstarfsemi skjaldkirtils með of háum efnaskiptum líkamans). Þetta gildir einnig í þeim tillfellum sem joðið hefur verið gefið per os eða per rectum.
- Ekki er hægt að gera ísótóparannsóknir eða meðhöndlun á skjaldkirtli með ísótópum í einhvern tíma.
Athugið: Nánari upplýsingar eru í undirköflum.
Efnisyfirlit - Athugið að líka er hægt að nota valmyndina, efst til hægri
Frábendingar fyrir joðskuggaefni
Aukin hætta á ofstarfsemi skjaldkirtils (hyperthyroidism)
Lítil hætta á ofstarfsemi skjaldkirtils
Leiðbeiningar þegar hætta er á ofstarfsemi skjaldkirtils